Nýtt gallerí

Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson

Nýtt gallerí

Kaupa Í körfu

LISTAMENNIRNIR Steini (Þorsteinn Gíslason) og Gamli Elgur (Helgi Þórsson) komu sér þægilega fyrir á árbakkanum í Eyjafjarðarsveit. Anna Bryndís Sigurðardóttir, eigandi gallerísins ásamt Steina, bauð upp á kaffi og snittur. Þau virtust sátt og vel það; mætingin var góð á fyrstu sýningunni, um það vottuðu áritanir í gestabókinni. Að auki fylgdust fjölmargir sýningargestir með úr bílunum sínum en stigu ekki út og inn í sjálfan "sýningarsalinn". MYNDLIST Útilist Útþrá/Heimþrá er verk eftir Steina, en um það segir: "í minningu þeirra sem fóru en komu ekki aftur, einnig þeirra sem fóru en komu aftur, líka þeirra sem komu og fóru og svo þeirra sem komu og fóru ekki aftur."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar