Dætur Ríkharðs Jónssonar á Akranesi

Brynjar Gauti

Dætur Ríkharðs Jónssonar á Akranesi

Kaupa Í körfu

Ríkharður Jónsson og Hallbera Guðný Leósdóttir á Akranesi eiga fimm börn; yngstur er Jón Leó sem býr í Svíþjóð. Ég spyr hvort hann hafi orðið að flýja land fyrir ráðríki þeirra systra. „Já, já, það leikur enginn vafi á því,“ segir Ragnheiður, sem í fjölskyldunni gengur undir nafninu Haddý. „Nú er hann kominn með sænska konu og fimm börn og unir hag sínum vel. En hann saknar okkar auðvitað. Og hann kemur reglulega heim til þess að anda að sér systrailminum. Hann getur ekki án okkar verið. MYNDATEXTI Nú er hann stekkur en þó eru þar ennþá rólur sem þær systur gátu setzt í þótt sveiflan sé ekki neitt í líkingu við það sem var í "þá gömlu góðu daga." En þær skemmtu sér vel við að rifja þá upp; Haddý, Sigrún, Hrönn og Ingunn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar