Örn Ingi Magnússon og Sigurður Ingi Bjarnason

Örn Ingi Magnússon og Sigurður Ingi Bjarnason

Kaupa Í körfu

Sigurður Bjarnason eigandi Vélaverkstæðis S.I.B í Grímsey er verktaki við færslu á garði við höfnina og dýpkun. Þessum framkvæmdum, sem hófust fyrir rúmum mánuði, fylgir töluvert rót og rask og miklir grjótflutningar. Lengja á bryggjuna um 20 metra til að skapa betra legupláss fyrir bátana. Gamli garðurinn var tekinn og fyllingu komið fyrir til að bora í gegnum og sprengja neðansjávar. MYNDATEXTI Á bryggjunni Örn Ingi Magnússon (til vinstri) og Sigurður Ingi Bjarnason verktaki vinna hörðum höndum að hafnarframkvæmdum í Grímsey.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar