Farsímin kominn á hringveginn

Farsímin kominn á hringveginn

Kaupa Í körfu

Allur þjóðvegur 1, hringvegurinn, er nú kominn í gsm-samband eftir að Síminn kveikti á nýjum sendi á Krókhálsi í Norðurárdal. Þar með lauk þeim áfanga í framkvæmd fjarskiptaáætlunar sem Fjarskiptasjóður og Síminn sömdu um í janúar 2007, en með samningnum var Símanum falið að koma á farsímaþjónustu á öllum hringveginum, á fimm fjallvegum og nokkrum ferðamannastöðum. MYNDATEXTI Fagna opnuninni Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, fékk símtal frá Kristjáni Möller samgönguráðherra í tilefni af opnun farsímasendis í Norðurárdal. Ekki var að heyra annað en að sambandið væri ágætt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar