SPRON hluthafafundur

SPRON hluthafafundur

Kaupa Í körfu

HLUTHAFAFUNDUR SPRON sem haldinn var í gærkvöldi samþykkti með miklum meirihluta greiddra atkvæða samruna félagsins við Kaupþing. Ekki voru þó allir fundarmenn sáttir við framlagða tillögu stjórnar og var ekki gengið til atkvæða fyrr en eftir hressilegar umræður, sem stóðu í um einn og hálfan tíma. Af greiddum atkvæðum voru 83,7% samþykk tillögunni en 16,2% á móti. Mætt var fyrir 3,7 milljarða króna hlutafjár í SPRON, eða 74,6% alls hlutafjár. MYNDATEXTI Ómyrkur í máli Sumir fundarmanna vönduðu stjórn og stjórnendum SPRON ekki kveðjurnar á fundinum í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar