Umferðarljós endurnýjað

Umferðarljós endurnýjað

Kaupa Í körfu

MARGAR hendur vinna létt verk segir máltækið. Það sannaðist þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu í vikunni samhentir við að reisa nýjan umferðarvita á Höfðabakkabrú, sem var ekinn niður um helgina. Þótt tilefnið hafi verið öllu hversdagslegra minnir ljósmyndin á fræga mynd af því atviki í síðari heimsstyrjöldinni þegar bandarískir hermenn reistu fána lands síns á japönsku eyjunni Iwo Jima árið 1945.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar