Breiðablik - KR

Haraldur Guðjónnson

Breiðablik - KR

Kaupa Í körfu

BREIÐABLIK og KR urðu bæði að sætta sig við eitt stig þegar liðin mættust í 14. umferð Landsbankadeildarinnar í gærkvöldi. Fyrsta jafntefli KR í sumar en það fimmta sem Blikar gera. Kópavogsliðið fór þar með í fjórða sætið með jafn mörg stig og Valur sem getur farið í þriðja sætið með því að leggja Fylki í kvöld. KR er hins vegar í sjötta sæti en gæti misst það í hendur Fjölnis í kvöld en Grafarvogsliðið fær Grindavík í heimsókn. MYNDATEXTI Umkringdur Björgólfur Takefusa sækir að marki Blika en þrír fjórðu af vörn Kópavogsliðsins, Arnór Aðalsteinsson, Finnur Orri Margeirsson og Srdjan Gasic, verjast.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar