Páll Bjarnason

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Páll Bjarnason

Kaupa Í körfu

Fyrsti skóladagurinn markar tímamót í lífi barna og flest þeirra eru full eftirvæntingar. „Ég á stóra frænku sem er tíu ára og ratar um allan skólann,“ segir Marta María Sæberg, full sjálfstrausts og hvergi bangin. „Æi, þetta verður svolítið erfitt, þú skilur, er það ekki?“ spyr Páll Bjarnason. „Að byrja að læra og svona,“ bætir hann við þótt hann segist halda að það verði stuð í frímínútum. „Ég hlakka til en ég kvíði líka smá fyrir,“ leggur Týr Fáfnir til málanna. MYNDATEXTI Kópavogsskóli Páll er hugsi yfir skólagöngunni og þýðingu hennar en hlakkar til að blanda sér í frímínútnastuðið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar