Skólavörðustígur í viðgerð

Skólavörðustígur í viðgerð

Kaupa Í körfu

SKÓLAVÖRÐUSTÍGURINN verður opnaður fyrir umferð á laugardaginn eftir að hafa verið lokaður vegna endurbóta sem staðið hafa yfir frá því í mars. Af því tilefni ætla fyrirtæki við götuna að efna til hátíðar klukkan 13 á laugardag, þar sem boðið verður upp á margs konar skemmtiatriði. „Það er líka gleðilegt fyrir fólk að komast í miðborgina. Það átta sig ekki margir á því, en ef Skólavörðustígurinn er lokaður finnst fólki kannski ekki eins gaman að fara niður í miðborgina,“ segir Eggert feldskeri, sem fagnar opnuninni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar