Félag þingeyskra kvenna

Hafþór Hreiðarsson

Félag þingeyskra kvenna

Kaupa Í körfu

Félag þingeyskra kvenna í Reykjavík kom færandi hendi í Snæland á Húsavík fyrir skömmu og færði geðræktarmiðstöðinni Setrinu sem þar er til húsa góða gjöf. Guðrún Jóhannsdóttir, fyrsti formaður Félags þingeyskra kvenna, afhenti gjöfina en um er að ræða 200 þúsund krónur sem þegar hafa verið nýttar til tækjakaupa fyrir Setrið. MYNDATEXTI Gjafmildi Stefán B. Sigtryggsson og Sigurbjörg Jóhannesdóttir tóku við gjöfinni, 200 þúsund kr., úr hendi Guðrúnar Jóhannsdóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar