Dr. Joseph Paul biskup og Guðmundur Hauksson

Dr. Joseph Paul biskup og Guðmundur Hauksson

Kaupa Í körfu

AÐGANGUR að hreinu vatni fyrir almenning í Malaví verður væntanlega greiðari vegna samstarfs SPRON og Hjálparstarfs kirkjunnar um vatnsöflun í landinu. Ætlunin er að bora fyrir 75 vatnsbrunnum með tilstyrk SPRON og Hjálparstarfs kirkjunnar til að tryggja aðgang fólks að hreinu vatni. Þá er að hefjast söfnun á vegum Starfsmannafélags SPRON til kaupa á fimm þúsund skópörum handa berfættum börnum í Malaví. Skóleysi barnanna veldur hættu á sýkingum í gegnum óvarða fætur þeirra. MYNDATEXTI Gjafir Dr. Joseph Paul biskup gaf Guðmundi Haukssyni sparisjóðsstjóra SPRON úrvalskaffi frá Malaví og fékk bækur um Ísland frá Guðmundi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar