FH - Fylkir

Haraldur Guðjónsson

FH - Fylkir

Kaupa Í körfu

DAVÍÐ Þór Viðarsson, fyrirliði bikarmeistara FH, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu sem mætir Aserbaídsjan í vináttuleik á Laugardalsvellinum annað kvöld. Davíð Þór tekur sæti Arnórs Smárasonar frá hollenska liðinu Heerenveen en Arnór á við meiðsli að stríða. Davíð Þór er 24 ára gamall og hefur leikið 5 leiki með A-landsliðinu en hann lék sinn fyrsta leik gegn Kanadamönnum fyrir ári. Davíð var í landsliðshópnum sem lék á Möltumótinu í vor og gegn Færeyingum í Kórnum í mars. MYNDATEXTI Davíð Þór Viðarsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar