Sirkus endurbyggður

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Sirkus endurbyggður

Kaupa Í körfu

Sirkus er farinn að taka á sig kunnuglega mynd á verkstæði Kling & Bang í miðbænum. Barborðið er komið á sinn stað og á veggjunum eru auglýsingaplaköt fyrir löngu liðna tónleika og listviðburði. Barinn verður síðan fluttur í heilu lagi og settur upp á Frieze Art Fair þar sem allt innbú staðarins verður á sínum stað, bjór á krana og kráareigandinn Sigga mun standa vaktina á barnum. MYNDATEXTI Á barnum Þeir Kristján Björn, Daníel, Bjarni Massi og Erling slaka á við barinn á Sirkus eins og svo oft áður. Klósettin og efri hæðin verða ekki endurbyggð, þó að stiginn fái að fylgja með.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar