Veggjakrot og fleira á Hverfisgötu

Veggjakrot og fleira á Hverfisgötu

Kaupa Í körfu

Veggjakrotari var staðinn að verki við fjölbýlishús á höfuðborgarsvæðinu fyrradag. Um var að ræða unglingspilt sem reyndi að komast undan en einn íbúanna náði til hans og kallaði til lögreglu. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu játaði pilturinn sök en tjónið er nokkurt og fylgir kostnaður því að ná veggjakrotinu af. Að þessu sinni náðust sættir, sem felast í því að pilturinn málar sjálfur yfir krotið. Hann mun ennfremur mála yfir allt annað veggjakrot sem kann að koma á þessa fasteign næsta hálfa árið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar