Orðuveiting

Orðuveiting

Kaupa Í körfu

HÁTÍÐARSTEMNING var á Bessastöðum í gær þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti íslenska landsliðinu í handbolta heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. „Mér finnst það mikilvægt að Íslendingar allir átti sig á því að afrek ykkar er ekki aðeins merkilegt og einstakt í okkar sögu heldur er það það líka í heimssögu íþróttanna,“ sagði Ólafur Ragnar í ræðu sinni við athöfnina. Einnig sagði hann að með orðunni væri viðtakendum hennar sýnt þakklæti þjóðarinnar og veittur sá heiður sem henni væri dýrmætastur. MYNDATEXTI Stórriddari Ólafur forseti bregður stórriddarakrossinum um háls Ólafs fyrirliða

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar