Tíska á Skólavörðustíg

Tíska á Skólavörðustíg

Kaupa Í körfu

PARÍS, London og New York mega fara að vara sig. Hver þarf Avenue Montaigne og 5. breiðstræti þegar hann hefur Skólavörðustíginn? Stígurinn heitir tískusýningin sem í dag fer fram þriðja árið í röð á Skólavörðustígnum, í tískustórborginni Reykjavík. „Þetta byrjaði sem lítil hugmynd um að gera eitthvað til að lífga upp á Skólavörðustíginn, rífa á hærra plan og gera eitthvað skemmtilegt í sameiningu,“ segir Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir, hárstílisti, hönnuður og einn skipuleggjenda sýningarinnar. MYNDATEXTI Tóta og Áslaug reka sitt fyrirtækið hvor á Skólavörðustígnum og fengu þá hugmynd að gæða Skólavörðustíginn meira lífi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar