Hamarinn

Hamarinn

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var engu líkara en stórslys hefði orðið við Akrafjall í gær; skurðgrafa á hliðinni, sjúkraþyrla á sveimi, sjúkra- og slökkviliðsbílar á staðnum og menn í einkennisbúningum á hlaupum. Ekkert alvarlegt var þó á ferð heldur tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Hamrinum sem Reynir Lyngdal leikstýrir eftir handriti Sveinbjörns I. Baldvinssonar en þættirnir verða sýndir í Sjónvarpinu í vetur. Í gær stóðu yfir tökur á atriði í fyrsta þætti, þegar skurðgrafa fer fram af hamri með skelfilegum afleiðingum. Myndirnar tala sínu máli. MYNDATEXTI Í mörg horn að líta Reynir Lyngdal leikstjóri lítur yfir tökustað, menn þungir á brún í bakgrunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar