Vatnspípur

hag / Haraldur Guðjónsson

Vatnspípur

Kaupa Í körfu

Stemningin felst fyrst og fremst í því að reykja saman, með þennan fallega hlut sem vatnspípa er. Leika sér að því að búa til hringi og annað slíkt. Ég nenni aldrei að reykja þessa vatnspípu ein,“ segir Áróra Árnadóttir menntaskólanemi, en hún á litla vatnspípu sem hún tekur stundum fram í samkvæmum og býður fólki að smakka. „Þessi pípa er keypt á Spáni en tvær vinkonur mínar gáfu mér hana í fyrra þegar þær komu heim eftir sumarlanga dvöl á Spáni. Pípan var því einhvers konar sárabót af því að þær voru svona lengi í burtu frá mér. Þær kynntust þessum vatnspípureykingum úti og þetta var nýtt fyrir mér þegar þær færðu mér gripinn. MYNDATEXTI Áróra með Eddu vinkonu sinni, sem er önnur þeirra sem gáfu henni vatnspípuna rauðu eftir Spánardvöl og langan aðskilnað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar