Heyskapur að hausti

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Heyskapur að hausti

Kaupa Í körfu

TÖLUVERT var um að bændur væru enn að slá seinni slátt í liðinni viku, ekki síst á Suðurlandi. Má því segja að heyskapur hafi lengst í báða enda þetta árið því víða var byrjað að slá óvenjusnemma í sumar. Almennt var heyskapur með betra móti á landinu öllu og spretta drjúg að sögn Ólafs Dýrmundssonar landnýtingarráðunautar. Sums staðar hafi þó borið á bruna á þurrlendistúnum og dæmi um kal vegna snjóþunga á Norðausturlandi. Litlar fyrningar voru í landinu síðustu vor og sums staðar heyskortur liðinn vetur en heyskapur í sumar gefi von um betri stöðu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar