Cirkus Agora

Cirkus Agora

Kaupa Í körfu

FJÖLLEIKAHÚSIÐ Cirkus Agora skemmti fyrir fullu sirkustjaldi í nágrenni við Smáralind í Kópavogi í fyrrakvöld, þegar meðfylgjandi myndir voru teknar. Sirkusinn er norskur og hefur verið starfræktur í ein 20 ár. Cirkus Agora heldur alls tíu sýningar á Íslandi og verður seinasta sýningin hjá Smáralind á fimmtudaginn, 11. september. Þá heldur Cirkus Agora til Selfoss, sýnir þar á föstudagskvöld og lýkur Íslandsförinni með sýningu á Egilsstöðum. Eins og sjá má af myndunum kunni fjölleikahússfólkið ýmislegt fyrir sér og ljóst að fáir leika eftir þessar listir án þess að æfa sig í nokkur ár eða svo. MYNDATEXTI Þessi kann sko að róla sér.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar