Þjóðleikhúsið með opið hús

Þjóðleikhúsið með opið hús

Kaupa Í körfu

ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ opnaði dyr sínar í fyrradag og kynnti verk sem flutt verða á fjölum þess í vetur sem og töfrandi heim leikhússins. Ræningjarnir úr Kardemommubænum, Kasper, Jesper og Jónatan, grilluðu pylsur ofan í gesti, Einar Áskell kíkti í heimsókn og Skoppa og Skrítla, börnin fengu andlitsmálun og gátu föndrað auk þess að virða fyrir sér ótalmarga króka og kima leikhússins. Þá var einnig boðið upp á bullandi pönk, brjálað diskó og leikhúsgaldra. Fyrir utan leikhúsið sat svo nikkari og lék fyrir gesti sem skiptu þúsundum. MYNDATEXTI Verðandi leikarar? Börnin fengu að máta búninga

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar