Megas í NASA

Megas í NASA

Kaupa Í körfu

TÓNLEIKAR Megasar og Senuþjófanna vegna útgáfu plötunnar Á morgun voru haldnir á NASA föstudagskvöldið síðastliðið. Platan kom út í júlí sl. og eru á henni sextán sígild dægurlög í nýrri útgáfu Megasar og félaga, tólf íslensk og fjögur erlend og textar allir á íslensku. Lögin eru öll í sérstöku uppáhaldi hjá Megasi, þ.ám. „Hagavagninn“, „Þórsmerkurljóð“, „Stína, ó Stína“ og „Brúnaljósin brúnu“. Megas og Senuþjófarnir hafa átt gífurlegum vinsældum að fagna meðal þjóðarinnar og hafa plötur þeirra selst vel, þ.e. Hold er mold, Frágangur og Á morgun. Sú síðastnefnda fékk afar jákvæðan dóm á síðum Morgunblaðsins, m.a. sögð útileguplata ársins. Megas var í góðu stuði, eins og sjá má af meðfylgjandi myndum, og svipbrigðin eftir því

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar