Skór

Friðrik Tryggvason

Skór

Kaupa Í körfu

Jæja, stelpur! Þá er að taka á honum stóra sínum. Himinháir hælar eru boðskapur stóru tískuhúsanna í vetur. Kannski ekki það heppilegasta í hálkunni en hörðustu skófíklar láta það varla aftra sér. Til allrar hamingju hefur skófrömuðunum hugkvæmst að skella á skæðin svokölluðum „platform-“sóla á fremri hluta þeirra en hann er nægilega þykkur til að jafna svolítið hæðarmuninn fyrir þær allra lofthræddustu MYNDATEXTI Skúlptúr? Hællinn er gegnsær að hluta. Frá With love og fást í GS skóm, Kringlunni. 7.990 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar