Þorgerður Katrín með Norðurlandameisturum í skák

Friðrik Tryggvason

Þorgerður Katrín með Norðurlandameisturum í skák

Kaupa Í körfu

Norðurlandameistarar grunnskóla í skák 2008 gáfu og þáðu gjafir ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra bauð skáksveit Rimaskóla, Norðurlandameisturum grunnskóla í skák 2008, til móttöku í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Skáksveitin kom heim með gullið frá Osló í lok ágúst. Skáksveitin afhenti menntamálaráðherra fyrsta eintakið af Leiðinni að gullinu, bók sem geymir í máli og myndum sigurgöngu sveitarinnar í skákmótum á síðasta skólaári.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar