Stjarnan - Fylkir

Stjarnan - Fylkir

Kaupa Í körfu

Átta lið skipa N1-deild kvenna, einu færra en síðast, eftir að lið Akureyrar dró sig út eftir farið í gegnum 24 leiki síðustu leiktíðar án þess að fá stig. Liðin átta mætast öll í dag þar sem stórleik Hauka og Íslandsmeistara Stjörnunnar á Ásvöllum kl. 14 ber hæst. HK tekur á móti „sputnikliði“ síðasta árs, Fram, í Digranesi á sama tíma. Þá sækir Valur liðsmenn Fylkis heim í Árbæinn þar sem annar þjálfari Íslandsmeistara síðustu leiktíðar, Aðalsteinn Eyjólfsson, ræður nú ríkjum. Loks mætast Grótta og FH í Kaplakrika kl.16. MYNDATEXTI Líklegar Harpa Sif Eyjólfsdóttir og stöllur hennar í Stjörnunni þykja sigurstranglegar á komandi Íslandsmóti og þær eiga meistaratitil að verja frá því í fyrra. Sunna María Einarsdóttir og félagar í Fylki eru á uppleið og stefna á að komast í baráttuna með bestu liðunum í vetur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar