Sandfok á Möðrudalsöræfum

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sandfok á Möðrudalsöræfum

Kaupa Í körfu

VEÐUR eru válynd þessi dægrin og ljóst að vetur er á næsta leiti þrátt fyrir að norðanáttir hafi ekki sýnt tennurnar. Enn er rétt rúmur mánuður í fyrsta vetradag og í höfuðborginni voru haglél á laugardagsmorgun í sunnanáttum. Til fjalla hafa snjóskýin þotið og hafa ýmsir fjallvegir ekki farið varhluta af slíkum tilþrifum. Á Möðrudalsöræfum var mikið moldrok í lok vikunnar, fáum til gamans. Spáð er áframhaldandi sunnanáttum með vætu næstu daga og 5-10 stiga hita.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar