U-21 Ísland - Danmörk

U-21 Ísland - Danmörk

Kaupa Í körfu

ÍSLENDINGALIÐIÐ Reading féll úr leik eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni við úrvalsdeildarlið Stoke í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöld. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading og Brynjar Björn Gunnarsson fyrstu 95 mínúturnar en þetta var fyrsti leikur hans með aðalliðinu síðan í janúar. Staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var 2:2 en í vítaspyrnukeppninni nýttu leikmenn Stoke fjórar spyrnur og Reading-menn þrjár. Hinn 19 ára gamli Gylfi Þór Sigurðsson hafði komið inn á sem varamaður fyrir Brynjar og hann gaf Reading von með því að skora úr fjórðu spyrnunni en Leroy Lita skaut yfir úr síðustu spyrnunni. MYNDATEXTI Gylfi Þór Sigurðsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar