Einar Áskell og Atli Finnsson

Einar Áskell og Atli Finnsson

Kaupa Í körfu

Þessa dagana gefst yngstu kynslóðinni tækifæri að sjá brúðuleiksýningu um hinn uppátækjasama snáða Einar Áskel. Brúðurnar eru eftir leikbrúðusnillinginn Bernd Ogrodnik og er sýningin byggð á bókunum Svei-attan, Einar Áskell og Góða nótt, Einar Áskell eftir Gunillu Bergström. Sýnt er í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins. Barnablaðið hitti nokkra krakka að lokinni sýningu og spurði þá hvað þeim fyndist um verkið. MYNDATEXTI Atla Finnssyni, 8 ára, fannst sýningin um Einar Áskel vera ágæt. Honum þótti skemmtilegast þegar Mjási kötturinn hans Einars var að leika ljón og faldi sig inni í skápnum. Þá varð Einar skelfingu lostinn af hræðslu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar