Einar Áskell og Kristján Þórðarson

Einar Áskell og Kristján Þórðarson

Kaupa Í körfu

Þessa dagana gefst yngstu kynslóðinni tækifæri að sjá brúðuleiksýningu um hinn uppátækjasama snáða Einar Áskel. Brúðurnar eru eftir leikbrúðusnillinginn Bernd Ogrodnik og er sýningin byggð á bókunum Svei-attan, Einar Áskell og Góða nótt, Einar Áskell eftir Gunillu Bergström. Sýnt er í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins. Barnablaðið hitti nokkra krakka að lokinni sýningu og spurði þá hvað þeim fyndist um verkið. MYNDATEXTI Kristjáni Þórðarsyni, 5 ára, fannst sýningin um Einar Áskel skemmtileg og fannst skemmtilegast þegar Einar Áskell fór í þyrluna. Kristján segist ekki vera vitund lofthræddur og að hann myndi vel þora að fara í þyrluferð eins og Einar Áskell.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar