Frakkland - Ísland

Frakkland - Ísland

Kaupa Í körfu

EFTIR leiki helgarinnar í Evrópukeppni kvenna skýrðust línur talsvert. Frakkland bættist í hóp með Svíþjóð, Þýskalandi og gestgjöfum Finnlands sem eiga víst sæti í lokakeppni EM næsta sumar. Lokaleikir riðlanna eru leiknir á miðvikudag og fimmtudag og þá eru hreinir úrslitaleikir um EM sæti í þremur riðlum. Spánn mætir Englandi, Danmörk mætir Úkraínu og Rússland mætir Noregi. Þar eiga Rússar erfiðasta verkefnið og þurfa að leggja norska liðið með fjögurra marka mun til að skáka því og komast beint á EM. MYNDATEXTI Áritun Dóra Stefánsdóttir áritar franska fánann fyrir unga fótboltastúlku í La Roche-sur-Yon.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar