Frakkland - Ísland

Frakkland - Ísland

Kaupa Í körfu

Það er engum blöðum um það að fletta, ekki einu sinni Morgunblaðinu, að erfitt var fyrir Íslendinga að horfa á fyrstu mínútur þessa leiks á laugardaginn var. Fyrstu tuttugu mínúturnar var aðeins eitt lið á vellinum og ekki var það Ísland. Grætilegt en jafnframt heillandi. Grætilegt af því að „stelpurnar okkar“ voru teknar í kennslustund þær mínútur en heillandi af því að kennarinn er eitt besta kvennalið heims og auðvelt var að sjá hvers vegna í fyrsta kafla leiksins. Þarna mættust liðin í sjöunda og átjánda sæti heimslista FIFA og munurinn var auðsjáanlegur MYNDATEXTI Ákveðin Sara Björk Gunnarsdóttir á fullri ferð í átt að marki mótherjanna í leiknum gegn Frökkum á laugardaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar