Landsbankinn

hag / Haraldur Guðjónsson

Landsbankinn

Kaupa Í körfu

ÖRTRÖÐ myndaðist í mörgum útbúum á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar sparifjáreigendur fóru að huga að inneignum sínum. Hermann Björnsson, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings banka, sagði að fólk hefði verið að spá í stöðuna og óska eftir skoðunum starfsmanna bankans á henni. „Fólk hefur eðlilega áhyggjur af fjármunum sínum. Okkar tími fer mikið í að róa mannskapinn,“ sagði hann. Langflestir væru ánægðir með svörin, aðrir dreifðu innstæðum og flyttu hluta yfir í aðra banka. Flestir hreyfðu þó ekki við reikningum sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar