Bubbi á Austurvellli

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Bubbi á Austurvellli

Kaupa Í körfu

ÆSINGUR einkenndi ekki þá sem mættu á mótmælatónleika Bubba Morthens á Austurvelli í hádeginu í gær. Bubbi boðaði til tónleikanna undir yfirskriftinni „krónan er fallin“ og lék þar meðal annars nýtt lag, „Ein stór fjölskylda“, sem hann samdi í fyrrinótt og mætti kalla bjartsýnisóð til þjóðarinnar. Um þrjú hundruð manns mættu á Austurvöll, mikið var um foreldra með börn sín og fólk maulandi hádegismatinn. Lítill baráttuandi lá í loftinu og einn þeirra sem ákváðu að sýna Bubba samstöðu komst svo að orði að gott veður virtist frekar spila inn í mætinguna en að kreppan hefði rekið fólk af stað. MYNDATEXTI Sannleikskorn Hægt var að kaupa boli með áletruninni „Bankanum þínum er sama um þig“ og segja líklega sumir það orð að sönnu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar