Vefur um geðheilsu barna opnaður

Vefur um geðheilsu barna opnaður

Kaupa Í körfu

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur opnað nýjan vef um geðheilsu barna sem ber heitið www.umhuga.is. Á nýja vefnum verður hægt að nálgast upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárum. Vefurinn er ætlaður foreldrum og uppalendum, fagfólki sem vinnur með börnum og ekki síst börnunum sjálfum. Foreldrar þurfa á þessum tímum að hlúa vel að börnum sínum og láta umræður um fjármálaerfiðleika ekki koma í veg fyrir samverustundir með fjölskyldunni, segir í tilkynningu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar