4X4 sýning

4X4 sýning

Kaupa Í körfu

MIKIÐ er um dýrðir á 8. sýningu Ferðaklúbbsins 4x4 í Fífunni í Kópavogi þar sem starfsemi klúbbsins er kynnt og jeppar af öllum gerðum og tegundum sýndir. Þetta er stærsta sýning klúbbsins til þessa og eru 130 ferða- og fjallabílar til sýnis, allt frá óbreyttum jeppum upp í mestu tröll. Jafnframt fagnar klúbburinn 25 ára afmæli sínu um þessar mundir. Á sýningunni eru ennfremur kynntar allar landsbyggðadeildir klúbbsins en í honum eru 6 þúsund manns í heildina. Sýningin verður opin í dag, sunnudag frá kl. 12-20.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar