Neptune og Harðbakur

Skapti Hallgrímsson

Neptune og Harðbakur

Kaupa Í körfu

BRÁTT lætur úr höfn á Akureyri rannsóknarskipið Neptune EA-41 og verður stefnan tekin á Eystrasaltið, þar sem skipið verður í þjónustu rússneskra gas- og olíufélaga næstu misserin. Skipið er eign fyrirtækisins Neptune ehf. á Akureyri og er fátítt eða jafnvel einsdæmi að íslenskt rannsóknarskip af þessari stærðargráðu sé í einkaeigu. Neptune ehf. hyggst ekki láta staðar numið, því fyrirtækið hefur keypt enn stærra skip, togarann Harðbak, og hyggst breyta honum í rannsóknarskip. MYNDATEXTI Harðbakur í forgrunni og fjær má sjá við bryggju Neptune EA sem brátt lætur úr höfn til rannsóknarstarfa í Eystrasalti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar