Fram - FH

Fram - FH

Kaupa Í körfu

SKOTSÝNING tveggja af efnilegustu handknattleiksmanna landsins, Rúnars Kárasonar Framara, og Ólafs Guðmundssonar FH-ings, var toppurinn á stórskemmtilegum leik Fram og FH í Safamýrinni í gærkvöldi. Saman skoruðu þeir nærri helming marka leiksins, eða alls 27 í viðureign sem endaði með jafntefli, 28:28. Rúnar skoraði 15 mörk, þar af níu síðari hálfleik og Ólafur 12, átta þeirra í fyrri hálfleik þegar FH-liðið fór tíðum á kostum og var tveimur mörkum yfir að honum loknum, 17:15. MYNDATEXTI Rúnar Kárason fór hamförum og skoraði 15 mörk, þar af 9 síðari hálfleik, þá honum héldu engin bönd.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar