Lóðir og framkvæmdir

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Lóðir og framkvæmdir

Kaupa Í körfu

HEILDARKOSTNAÐUR sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna skila á byggingarlóðum sem hefur verið úthlutað nemur um tíu milljörðum króna. Munar þar mikið um að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu settu ákvæði í samninga við lóðarhafa um að mögulegt væri að skila lóðunum inn fyrir fullt verð og verðbætur að auki. Fyrir vikið standa stór hverfi auð eða nánast auð en búið er að leggja vegi, gangstéttir, reisa ljósastaura og fleira. Sveitarfélögin sitja uppi með þennan kostnað MYNDATEXTI Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stóðu í mikilli uppbyggingu á íbúðarhverfum samhliða úthlutun á íbúðarlóðum. Sveitarfélögin hafa þurft að bera mikinn kostnað vegna skila á byggingarlóðum. Tómlegt er í Úlfarsársdal þótt þar sé búið að byggja upp grunnaðstöðu íbúðarbyggðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar