Haukar - Víkingur

Friðrik Tryggvason

Haukar - Víkingur

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknattleik karla hafa verið fremur köflóttir í leik sínum í upphafi leiktíðar. Á sama tíma og þeir hafa náð óaðfinnanlegum árangri í Meistaradeild Evrópu töpuðu þeir þremur deildarleikjum í röð. Í gær fengu þeir nýliðana í Víkingi í heimsókn á Ásvelli og bundu Haukarnir þá enda á þessa taphrinu sína í N1-deildinni. Haukar unnu stórsigur, 37:23, eftir að hafa verið yfir 18:14 í hálfleik. MYNDATEXTI Leikmenn Víkings gáfu ekkert eftir í varnarleiknum gegn Haukum en það dugði ekki til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar