Gassprenging í Grundargerði

Gassprenging í Grundargerði

Kaupa Í körfu

FIMM unglinganna sem slösuðust í gassprengingunni í verkfæraskúr Reykjavíkurborgar í Grundargerðisgarðinum svonefnda á mánudag, voru útskrifaðir af gjörgæsludeild Landspítalans í gær en einum pilti úr hópnum var haldið eftir á deildinni vegna áverka sinna MYNDATEXTI GASSPRENGINGIN sem varð í vinnuskúrnum í Grundargerðisgarðinum á mánudagskvöld var gífurlega öflug og myndaðist vegna leka frá gaskút. Rannsókn lögreglunnar miðar að því að upplýsa nánari tildrög slyssins en sex unglingar slösuðust töluvert, þar af einn sýnu mest og er hann á gjörgæsludeild. Íbúar í nágrenninu reyndu eftir föngum að hlúa að hinum slösuðu strax í kjölfar slyssins uns sjúkralið kom á vettvang

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar