Norður-Evrópumót í áhaldafimleikum

hag / Haraldur Guðjónsson

Norður-Evrópumót í áhaldafimleikum

Kaupa Í körfu

VIKTOR Kristmannsson skaraði fram úr í hópi íslenskra keppenda á Norður-Evrópu-mótinu í áhaldafimleikum sem fram fór í íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi um helgina. Viktor varð þriðji í fjölþrautakeppni á laugardag og var síðan hársbreidd frá því að ná í bronsverðlaun í keppni á svifrá í gær. Í liðakeppni varð Ísland í fimmta sæti í karlaflokki af þeim níu þjóðum sem tóku þátt, en í kvennaflokki endaði Ísland í sjötta sæti. Sólveig Jónsdóttir, fimleikaþjálfari úr Gerplu og einn af skipuleggjendum mótsins, segir árangurinn vel viðunandi á þessu móti sem er hið stærsta sem haldið hefur verið hérlendis MYNDATEXTI Loftfimleikar Diminiqua Belanyi, úr Gróttu, sýndi flott tilþrif á jafnvægislánni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar