Kerti - Leikskólinn Síðusel

Skapti Hallgrímsson

Kerti - Leikskólinn Síðusel

Kaupa Í körfu

Um 150 krakkar heimsækja Bjarg-Iðjulund á Akureyri á þessu ári NEMENDUR leikskólans Síðusels á Akureyri heimsóttu starfsmenn á Bjargi-Iðjulundi í gær og færðu þeim kertastubba. Þau hlýddu áhugasöm á Jón M. Jónsson verkstjóra og kertagerðarmeistara, lengst til vinstri. Krakkarnir komu með sjö kíló, sem þau söfnuðu á fáeinum dögum heima hjá sér. "Þetta er mjög dýrmætt efni," sagði Ólöf Leifsdóttir forstöðumaður og Jón M. hvetur fólk til þess að fara með kertastubba í endurvinnslu um leið og dagblöð eða dósir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar