María hjá Ostahúsinu
Kaupa Í körfu
Það er alltaf gott að eiga ost í ísskápnum, sérstaklega yfir jólin þegar fólk vill fá sér þægilegt snarl heima við í rólegheitum. Ostaneysla hefur aukist mikið síðastliðin ár og ostakörfur með öllu tilheyrandi eru sívinsælar jólagjafir. Íslenskir ostar og lax „Fyrir jólin verðum við með ostakörfurnar okkar, eins og mörg undanfarin ár. Við leggjum áherslu á íslenskt í ár og verðum aðallega með íslenskar vörur í körfunum, svo sem osta, salami, lax, konfekttómata og fleira. Úrvalið af ostunum verður fjölbreytt; brie-ostar, ostarúllur og nýir rjómaostar sem eru um það bil að koma á markað auk jólaostanna en meðal þeirra er ostarúlla með villijurtum og portvíni, fyllt ostarúlla með rommrúsínum og möndlum og brie með gráðaostarönd svo eitthvað sé nefnt. Körfurnar eru í fimm stærðum og kosta á bilinu frá 2.500 kr. og upp í um 5.000 kr., en einnig er hægt að sérvelja í stærri körfu þar sem algengt verð er 7-8.000 krónur,“ segir María Ólafsdóttir í Ostahúsinu.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir