Gettóvika í FB

Valdís Thor

Gettóvika í FB

Kaupa Í körfu

GHETTOVIKU lauk í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í gærkvöldi með allsherjar ghettoballi. Ýmiss konar viðburðir fóru fram í skólanum alla vikuna og voru nemendur hvattir til að mæta í ghetto/hipphoppfötum í skólann. Meðal þess sem fór fram var ghettokeila, battlkeppni og tónlistarmenn komu fram í hádegishléum. Til nánarar útskýringar er ghetto slangur sem oft er notað yfir borgarhverfi sem er einkum byggt minnihlutahópum vegna bágrar félagslegrar stöðu þeirra. MYNDATEXTI Klapp klapp Nemendur FB létu sitt ekki eftir liggja og fylgdust með tónlistarmönnunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar