Stærri-Árskógur

Skapti Hallgrímsson

Stærri-Árskógur

Kaupa Í körfu

EITT ár var í gær liðið frá því bændurnir í Stærri-Árskógi við utanverðan Eyjafjörð misstu nær allan bústofninn þegar fjós og hlaða brunnu til kaldra kola. Guðmundur Geir Jónsson og Freydís Inga Bóasdóttir létu ekki deigan síga, nýtt fjós var tekið í notkun í vor og nú er annað og miklu stærra að rísa þar við hliðina. Flokkur manna var við störf síðdegis í gær en mannskapurinn gaf sér auðvitað tíma til þess að fá sér kaffisopa, smurt brauð og lummur sem húsfreyjan bauð upp á. Guðmundur skenkir hér kaffi í glösin; Sigmundur er næstur, þá Stefán og Bóas inni í horni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar