Íslenskuverðlaun menntaráðs
Kaupa Í körfu
ÍSLENSKUVERÐLAUN menntaráðs Reykjavíkur voru veitt í annað sinn í gær, á degi íslenskrar tungu. Markmið verðlaunanna er að auka áhuga grunnskólanema á móðurmálinu og hvetja þá til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs. Rúmlega 100 grunnskólanemar í Reykjavík tóku við verðlaununum við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Grunnskólar borgarinnar tilnefndu nemendur eða nemendahópa af hverju aldursstigi til verðlaunanna. Þessir nemendur þóttu hafa skarað fram úr á ýmsa vegu, í skapandi skrifum, ljóðagerð og í munnlegri tjáningu. Þá geta skólar tilnefnt nemendur sem hafa sýnt miklar framfarir á einhverju sviði íslensku. Marta Guðjónsdóttir, formaður verðlaunanefndarinnar, sagði skólana strax í fyrra hafa sýnt verðlaununum mikinn áhuga og væru þau kynnt fyrir nemendum í hverjum skóla fyrir sig. MYNDATEXTI Nokkrir söng- og tónlistarnemendur á vegum verkefnisins Músíkalst par sýndu listir sínar í Ráðhúsinu.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir