Dr. Spock spilar í spinningtíma í Sporthöllinni

Valdís Thor

Dr. Spock spilar í spinningtíma í Sporthöllinni

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ var orðið mjög sveitt í lokin," segir Óttar Proppé um stemninguna sem myndaðist á útgáfutónleikum Dr. Spock sem fóru fram í spinningtíma í Sporthúsinu í Kópavogi í hádeginu í gær. "Þetta gekk framar vonum, fólk hjólaði eins og brjálað. Salurinn var troðfullur og þegar tíminn var búinn klöppuðu menn og vildu meira," segir Óttar en sveitin sendi nýlega frá sér gripinn Falcon Christ. MYNDATEXTI: Sportí Félagarnir í Dr. Spock fóru ekki í íþróttagalla í tilefni dagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar