Hjörtur Matthías

Hjörtur Matthías

Kaupa Í körfu

Þegar jólin ganga í garð stendur veturinn sem hæst og oft frost og snjór úti. Þá er gott að láta fara vel um sig inni við með heitan drykk. Kerti og piparkökur „Ég er svona meðal-jólabarn, myndi ég segja en til að ég komist í jólaskapið má ekki vanta kerti og piparkökur, epli og appelsínur og auðvitað jólalögin. Eftir að kaffihúsin fóru að nýta sér þennan tíma til að brydda upp á nýjungum og bjóða upp á jóladrykki hefur fólk um leið farið að prófa ýmislegt heima hjá sér. Þannig hefur það orðið meira þorið með að setja til dæmis krydd, súkkulaði og jafnvel líkjöra út í kaffið,“ segir Hjörtur Matthías Skúlason kaffibarþjónn. MYNDATEXTI Hönnuður og kaffibarþjónn Hjörtur Matthías Skúlason hefur nýverið unnið að hönnun nýs kaffihús, Kaffismiðju Íslands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar