Tómas R., Mugison og Ragnheiður Gröndal

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Tómas R., Mugison og Ragnheiður Gröndal

Kaupa Í körfu

BASSALEIKARINN Tómas R. Einarsson hélt tónleika í Iðnó á miðvikudagskvöld, en tilefni þeirra var útkoma hans nýjustu plötu, Trúnó. Auk Tómasar og hljómsveitar hans komu fram á tónleikunum þau Ragnheiður Gröndal og Mugison, og fluttu þau lög Tómasar við ljóð yngri og eldri skálda, auk hans eigin texta. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var stemningin á tónleikunum afar góð. MYNDATEXTI Brosmild Þau Mugison, Tómas R. og Ragnheiður slógu á létta strengi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar