Bárðargil

Atli Vigfússon

Bárðargil

Kaupa Í körfu

Þingeyjarsveit | „Ég er mjög ánægð hérna í sveitinni og sérstaklega ánægð með nýja leikskólann,“ segir Sigrún María Olsen og undir þetta tekur Ásta Hrönn Hersteinsdóttir en þær stöllur tóku að sér leikskóladeildina sem stofnuð var í Bárðardal í haust. Leikskóladeild þessi hefur verið nefnd Bárðargil og er staðsett í Kiðagili þar sem áður var barnaskólinn sem nú er aflagður. Þær Sigrún og Ásta eru báðar frá Akureyri og fengu ágætt húsnæði í dalnum og líkar vinnan vel í þessum litla leikskóla MYNDATEXTI Ásta Hrönn Hersteinsdóttir og Sigrún María Olsen með leikskólabörnunum í Bárðargili. F.v. Gísli Berg Hlinason, Arndís Björk Tryggvadóttir, Katrín Ösp Magnúsdóttir og Róbert Már Andrason. Tvö börn voru fjarverandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar